Samkeppnislög

Laugardaginn 07. maí 2005, kl. 18:24:38 (8289)


131. löggjafarþing — 125. fundur,  7. maí 2005.

Samkeppnislög.

590. mál
[18:24]

viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Fyrst ákvæðið er svona gríðarlega mikilvægt og takmarkar svo mikið möguleika samkeppnisyfirvalda á að bregðast við, hvers vegna hefur ákvæðið aldrei verið notað? Kannski getur hv. þingmaður frætt mig um það.