Samkeppnislög.
Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):
Herra forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þm. Pétri Blöndal að mönnum voru vel ljósir á sínum tíma ýmsir erfiðleikar sem stöfuðu af ríkjandi ástandi í íslenska viðskiptaheiminum þegar nýju samkeppnislögin gengu í gildi. Það var auðvitað ekki hægt að klippa á það allt saman bara á einni nóttu. Ákveðin uppbygging var staðreynd, ákveðinn rekstur fyrirtækja var staðreynd sem menn urðu að horfast í augu við. Það voru hlutir eins og olíufélögin og samstarf þeirra, innkaup og annað því um líkt, sem var bein framlenging af opinberri stýringu og opinberum innkaupum frá Rússlandi á sínum tíma og allt það, sem við þekkjum. Það var staðan í landbúnaðargeiranum og fleiri slíkir hlutir sem voru vissulega ræddir og skoðaðir. Mönnum var ljóst að það mundi taka einhvern tíma að þroska og þróa þetta fyrirkomulag yfir í hið nýja umhverfi og hvað líður einstökum fundum með forstjóra Samkeppnisstofnunar með einhverjum aðilum þarna í árdaga þessa nýja fyrirkomulags, það ætla ég ekki að fara að fella dóma um. (Gripið fram í.) Kannski hefur það tekið lengri tíma en menn vonuðu og æskilegt hefði verið að vinna sig út úr því.
Ég tel að möguleikar samkeppnisyfirvalda til að grípa til aðgerða eins og þeir voru hugsaðir og skilgreindir í c-lið 17. gr. — það sem menn voru fyrst og fremst að hugsa var að það geta blasað við þær aðstæður, mönnum geta orðið ljósar þær aðstæður sem eru bersýnilega skaðlegar fyrir samkeppni á markaði. Þó að þær tengist ekki neinum beinum atburðum, þ.e. séu ekki til komnar beinlínis í augnablikinu vegna sameiningar fyrirtækja og þó að þær séu ekki orðnar ljósar vegna þess að brot hafi sannast, þá kemur að því, hversu langt mega þá samkeppnisyfirvöld ganga til að beita slíkri reglu? Ég nefndi það. Auðvitað verður öll slík framkvæmd að standast kröfur um hófsemd og meðalhóf. Ég útiloka ekki að bætur gætu þurft að koma til. Það gæti orðið samkomulagsatriði eða viðfangsefni dómstóla að skera úr slíku, (Forseti hringir.) ef menn gripu til íþyngjandi aðgerða í þágu þess að tryggja fulla samkeppni, en það hefði einhvern kostnað í för með sér fyrir þolandann.