Málefni aldraðra

Mánudaginn 11. október 2004, kl. 15:38:02 (282)


131. löggjafarþing — 6. fundur,  11. okt. 2004.

Málefni aldraðra.

85. mál
[15:38]

Pétur H. Blöndal (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er um að ræða hækkun á skatti sem allir Íslendingar skulu greiða. Ég tel eðlilegt að vísa frumvarpinu til hv. heilbrigðis- og trygginganefndar. Jafnframt vil ég skora á þá nefnd að hún leiti álits hjá hv. efnahags- og viðskiptanefnd þingsins.