Raforkulög

Föstudaginn 26. nóvember 2004, kl. 14:40:46 (2327)


131. löggjafarþing — 40. fundur,  26. nóv. 2004.

Raforkulög.

328. mál
[14:40]

Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra hvort breytingin á 12. gr. raforkulaganna sem kemur fram í 2. gr. frumvarpsins sé ekki óhagstæð fyrir minni virkjanir og skerði samkeppnishæfni raforkubænda.