Málefni aldraðra

Þriðjudaginn 30. nóvember 2004, kl. 17:06:20 (2454)


131. löggjafarþing — 45. fundur,  30. nóv. 2004.

Málefni aldraðra.

85. mál
[17:06]

Frsm. heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz) (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég árétta það að þessi hópur stækkar og fjárhæðin hækkar í áföngum jafnt og þétt. Strax á fyrsta ári hækka þessi viðmiðunarmörk en fyrst og fremst vil ég halda því til haga að þeir sem eru með tekjur við skattleysismörk í dag greiða ekki þetta gjald né þeir sem eru undir 16 ára aldri, eru yfir sjötugt eða eru á hjúkrunarheimilum og dvalarheimilum. Þessir aðilar eru allir undanþegnir og sá hópur á eftir að stækka.