131. löggjafarþing — 54. fundur,  10. des. 2004.

Bifreiðagjald.

377. mál
[02:14]

Jóhann Ársælsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þessu getur hv. þingmaður auðvitað svarað sjálfur. (PHB: Nú.) Það er mjög einfalt að auðvitað hefur gjaldið lækkað að raungildi síðan þá. (PHB: Já, gott … takk fyrir og góða nótt.) Hv. þingmaður verður nú að fá meira. (PHB: Nei, nei.) Þetta gjald hefur hækkað að raungildi um 43 eða 44% frá árinu 1988 (PHB: Það skiptir ekki máli.) og gjöld á bifreiðaeigendur hafa hækkað að raungildi. (PHB: Já já.)