Háskóli Íslands

Föstudaginn 10. desember 2004, kl. 14:47:47 (3445)


131. löggjafarþing — 55. fundur,  10. des. 2004.

Háskóli Íslands.

348. mál
[14:47]

Dagný Jónsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tók einmitt eftir því í ræðu hv. þm. Marðar Árnasonar áðan að hann var að hvetja mig til að samþykkja hækkun skráningargjalda. Mér þykir það nú nokkuð einkennilegt og kannski er það óskhyggja hv. þingmanns en honum greinilega til mikilla vonbrigða hef ég hug á að styðja ekki þetta mál og fara eftir sannfæringu minni. Það að hann skuli ekki skilja rök mín er hans vandamál en ekki mitt.