Fundargerð 131. þingi, 130. fundi, boðaður 2005-05-10 19:50, stóð 19:50:06 til 21:48:02 gert 10 22:1
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

130. FUNDUR

þriðjudaginn 10. maí,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:


Almennar stjórnmálaumræður.

[19:50]

Umræðurnar voru sendar út í útvarpi og sjónvarpi.

Umræðurnar fóru þannig fram að hver þingflokkur fékk 22 mínútur til umráða sem skiptust í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð og 6 mínútur í annarri og síðustu umferð.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna voru: Fyrir Samfylkinguna töluðu í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð Rannveig Guðmundsdóttir, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, en í þriðju umferð talaði Jón Gunnarsson, 10. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Sjálfstæðisflokk töluðu í fyrstu umferð Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, í annarri Arnbjörg Sveinsdóttir, 6. þm. Norðausturkjördæmis, en í þeirri þriðju Bjarni Benediktsson, 11. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs voru í fyrstu umferð Ögmundur Jónasson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð Þuríður Backman, 10. þm. Norðausturkjördæmis, en Jón Bjarnason, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra í fyrstu umferð, Siv Friðleifsdóttir, 5. þm. Suðvesturkjördæmis í annarri, en í þriðju umferð Dagný Jónsdóttir, 8. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn talaði í fyrstu umferð Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvesturkjördæmis, Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurkjördæmis, í annarri og Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fundi slitið kl. 21:48.

---------------