Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 606. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1133  —  606. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2004 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ernu S. Hallgrímsdóttur frá utanríkisráðuneyti, Sigurberg Björnsson frá samgönguráðuneyti og Þorgeir Pálsson og Kristján Þorbergsson frá Flugmálastjórn.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 179/2004 frá 9. desember 2004 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1592/2002 frá 15. júlí 2002 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu.
    Reglugerðin lýtur að stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu og skilgreinir þau verkefni sem henni eru falin, en stofnuninni er að hluta til ætlað að taka við hlutverki Flugöryggissamtaka Evrópu sem Ísland er aðili að. Flugöryggisstofnuninni verður falið að gefa út eða meta gildar tegundarviðurkenningar flugvéla og flugvélahluta og er fyrirhugað að EFTA-ríkin skuldbindi sig til að taka viðurkenningar stofunarinnar gildar og gefa ekki út slíkar viðurkenningar sjálf.
    Talið er að töluverðir hagsmunir séu bundir þátttöku Íslands í Flugöryggisstofnuninni en aðildin gefur Íslandi m.a. færi á að hafa áhrif á mótun reglna og styðja við útrás íslenskra flugfélaga.
         Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
        Steingrímur J. Sigfússon ritar undir nefndarálitið með fyrirvara.

Alþingi, 6. apríl 2005.



Sólveig Pétursdóttir,


form., frsm.


Siv Friðleifsdóttir.


Drífa Hjartardóttir.



Rannveig Guðmundsdóttir.


Steingrímur J. Sigfússon,


með fyrirvara.


Sigurður Kári Kristjánsson.



Jónína Bjartmarz.


Þórunn Sveinbjarnardóttir.