Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 722. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Nr. 15/131.

Þskj. 1417  —  722. mál.


Þingsályktun

um fullgildingu samnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Líbanons.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og lýðveldisins Líbanons sem undirritaður var í Montreux í Sviss 24. júní 2004.

Samþykkt á Alþingi 10. maí 2005.