Stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég heyri engin svör frá hv. þingmönnum Frjálslynda flokksins sem útskýra hvernig staðan væri nú ef farið hefði verið að þeirra vilja í þessum efnum. Hvert væri verðið á sóknardeginum, hvert væri verðið á veiðileyfinu í sóknardagakerfinu í dag? Menn vita alveg (Gripið fram í.) hver þróunin var á þessari verðlagningu fram á vordaga 2004. Hver hefði þróunin orðið að óbreyttu, virðulegi forseti? Hv. þingmenn hafa ekki sagt eitt orð um það vegna þess að þeir vita hver þróunin hefði orðið. Þeir eru þá að berjast fyrir því að verðlagningin á því hefði þróast áfram eins og hún var að gera. Hver er munurinn á því og þeirri breytingu sem gerð var á vordögum 2004? Hver hefði verið betur settur, hver hefði verið verr settur? Hv. þingmenn verða að útskýra það svo að kjósendur hafi þá samanburðinn, (MÞH: Svaraðu því sem ég spurði þig.) hafi þá valkostina. Mér finnst að hv. þingmenn, sem taka mikið til máls, verði eiginlega að fara að nota ræðustólinn til að útskýra sína eigin stefnu.
Hvaða breytingar vilja þeir gera á kvótakerfi Frjálslynda flokksins sem þeir boðuðu? Ég fór yfir það í ræðu minni hvaða annmarka ég sæi á núverandi löggjöf. Ég fór yfir það að ég teldi að hún væri ekki orðin fullkomin og þyrfti að gera á henni verulegar breytingar. En hvaða breytingar vilja þingmenn Frjálslynda flokksins gera á kvótakerfinu sínu sem þeir boðuðu fyrir kosningar? Þeir segja ekki orð um það, virðulegi forseti. Þeir segja ekki orð um það. (Gripið fram í.) Þeirra kvótakerfi er greinilega fullkomið, virðulegi forseti, og þarfnast engra frekari breytinga.