Almenn hegningarlög

Þriðjudaginn 11. apríl 2006, kl. 17:30:28 (7618)


132. löggjafarþing — 103. fundur,  11. apr. 2006.

Almenn hegningarlög.

712. mál
[17:30]
Hlusta

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S) (andsvar):

Frú forseti. Það frumvarp sem ég flyt hér í dag samræmist fullkomlega siðferðiskennd minni og ég tel að ekki sé verið að brjóta í bága við siðferði með því að flytja þetta frumvarp.