Tekjuskattur.
Frú forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að hækkun á verði íbúða þar sem menn búa í íbúð sinni áfram er gervihagnaður og kemur manni ekki til góða í lífsbaráttunni alla daga. Þetta er hárrétt athugasemd. Hins vegar hafa óskaplega margir tekið lán í banka og skuldbreytt eldri lánum og vaxtalækkunin sem orðið hefur á síðustu tveimur árum úr u.þ.b. 7–8% hjá bönkunum niður í rúm 4%, 4,6% núna, er sennilega besta kjarabót sem Íslendingar hafa fengið, íslenskir launamenn. Mjög margir hafa nýtt sé þessa vaxtalækkun sem gerir þörf á vaxtabótum minni en ella. En ég sakna þess að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi ekki komið með breytingartillögu í vaxtabótakerfinu út af þessum vanda. Menn geta ekki alltaf vísað á það að ríkisstjórnin, sem er framkvæmdarvaldið, eigi að semja lög á Alþingi. Hv. þingmenn gera allt of mikið af því að vísa vandanum yfir á ríkisstjórnina í staðinn fyrir að leysa hann sjálfir.
Það má vel vera að skoða þurfi þetta með vaxtabæturnar og skerðinguna þar en á móti kemur, eins og ég gat um, stórfelld vaxtalækkun sem er sennilega ein mesta hagsbót sem launþegar á Íslandi hafa fengið í áratugi.