Olíugjald og kílómetragjald o.fl.
Virðulegi forseti. Mér fannst eins og hæstv. fjármálaráðherra væri að verða vinstri grænn hérna á tímabili í talinu um umhverfisvænu orkuna. Auðvitað er enginn að tala fyrir því að hér eigi að vera einhver orkusóun. Þetta er langtímamarkmið og göfug hugsjón sem menn hafa verið með eins og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon var með hér áðan. En við erum meira að tala um núið núna og það er eiginlega það sem ég ætla að leggja út af í þessu seinna andsvari mínu vegna þess að hæstv. fjármálaráðherra sagði að við í Samfylkingunni værum snögg upp á lagið hvað þetta varðaði og hann væri hissa hvað við værum áköf í þetta.
Við erum að tala um þetta sem nokkurs konar bráðaaðgerð. Það er alveg rétt. Við erum alveg til í að skoða heildstætt þær hugmyndir sem hér hafa komið fram til þess að spara orku, við erum alltaf að gera það og við Íslendingar erum sannarlega mjög framarlega í þeim flokki, það er grundvallaratriði.
Það er t.d. eitt atriði til að spara orku sem ég hef talað um hér og það er ef við tækjum t.d. upp einhvers konar styrkjakerfi og kæmum aftur á strandsiglingum og mundum minnka þá umferð sem er á þjóðvegum landsins við að flytja vörur. Ég hef sagt það hér og segi það enn einu sinni að ég skil ekki af hverju þarf að flytja 40 feta gám af frosnum fiski í einhverjum hvelli frá einum stað til annars eftir þjóðvegakerfi landsins. Þetta ætti að sjálfsögðu (Forseti hringir.) að fara fram á sjónum með skipulögðum strandsiglingum og þar með spöruðum við orku.