Hlutafélög

Fimmtudaginn 01. júní 2006, kl. 14:52:44 (8527)


132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

hlutafélög.

684. mál
[14:52]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, með síðari breytingum (samlagshlutafélög o. fl.).

Nefndarálitið er á þskj. 1312 og þar er getið um gesti sem komu á fund nefndarinnar sem og umsagnir sem henni bárust og þar er lýst meginefni frumvarpsins.

Nefndin leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu. Lögð er til breyting á b-lið 1. gr. vegna framkominna umsagna þannig að arðgreiðsluákvæði frumvarpsins nái til allra hlutafélaga en ekki aðeins þeirra hlutafélaga sem skráð eru á skipulegan verðbréfamarkað.

Þá er lagt til að 5. mgr. a-liðar 2. gr. verði felld brott enda er tilvísun hennar í viðkomandi reglur og lög allt of víðtæk og óljós að mati nefndarinnar auk þess sem hún getur ekki talist nauðsynleg.

Fjallað var sérstaklega um heimildir skv. c- og d-lið 2. gr., þ.e. að breyta hlutafélagi í samlagshlutafélag og öfugt. Nefndin telur rétt með tilliti til minnihlutaverndar að leggja til breytingu á 1. málsl. 1. mgr. fyrrnefnds c-liðar þannig að gerðar séu strangari kröfur en gerðar eru í frumvarpinu í þeim hugsanlegu tilvikum er vilji stendur til að breyta hlutafélagi í samlagshlutafélag. Þannig þurfi ekki aðeins samþykki með þeim fjölda atkvæða sem krafist er til breytinga á félagssamþykktum heldur samþykki allra hluthafa eins og fordæmi er fyrir í 94. gr. laganna í ákveðnum veigamiklum tilvikum.

Ákvæði frumvarpsins um samlagshlutafélög er með miklu minni hlutafélagavernd og gefur miklu meiri möguleika fyrir þá sem þekkingu hafa á og því var talið nauðsynlegt til að vernda hvern einasta lítinn hluthafa að veita honum neitunarvald. Bent er á í því sambandi að mönnum er alltaf í lófa lagið að stofna nýtt samlagshlutafélag til hliðar.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með fyrrnefndum breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.

Hv. þm. Lúðvík Bergvinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi við afgreiðslu málsins og er samþykkur áliti þessu.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Pétur H. Blöndal, Hjálmar Árnason, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Dagný Jónsdóttir, Birgir Ármannsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Ásta Möller og Ögmundur Jónasson.