Réttarstaða samkynhneigðra

Föstudaginn 02. júní 2006, kl. 11:33:13 (8574)


132. löggjafarþing — 120. fundur,  2. júní 2006.

réttarstaða samkynhneigðra.

340. mál
[11:33]
Hlusta

Bjarni Benediktsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við greiðum atkvæði um mál sem eyðir þeim óréttláta mun sem verið hefur á lagalegri réttarstöðu samkynhneigðra og gagnkynhneigðra hér á landi. Það eru dæmi þess að Alþingi ryðji brautina og valdi viðhorfsbreytingu í þjóðfélaginu með lagasetningu og því má halda fram að lög um staðfesta samvist, frá 1996, séu dæmi um slíkt mál.

Það mál sem við erum hér með fyrir framan okkur og greiðum nú atkvæði um er hins vegar að mínu áliti dæmi um hið gagnstæða, þ.e. að viðhorfsbreytingin hefur átt sér stað en þingið fylgir á eftir og breytir lögum. Allt stefnir í að einhugur sé um það á þinginu að afgreiða málið eins og það liggur fyrir. Það er mikið fagnaðarefni. Og það er ekki síst í þessu ljósi sem það er vel við hæfi að lögin munu taka gildi á alþjóðlegum mannréttindabaráttudegi samkynhneigðra 27. júní nk. en hið sama var valið fyrir gildistöku laganna um staðfesta samvist þegar þau voru afgreidd á þinginu.