hlutafélög.
Frú forseti. Frumvarp þetta geymir sérreglur um opinber hlutafélög en sú grein sem breytingartillagan er við sem við greiðum núna atkvæði um, 2. gr. frumvarpsins, lýtur að því að tryggja jafnan hlut karla og kvenna í stjórnum opinberra hlutafélaga eingöngu. Þar segir að við kjör í stjórn opinbers hlutafélags skuli gæta sérstaklega að jafnréttislögum.
Með breytingartillögunni á þskj. 1468 er kveðið skýrar og ótvírætt að orði um jafnan hlut karla og kvenna án þess að kvótagera konur. Þar segir að í kjör í stjórn opinbers hlutafélags skuli tryggt að sitji sem næst jafnmargar konur og karlar. Í því felst auðvitað jafn hlutur kynjanna, einungis að teknu tilliti til oddatölu stjórnarmanna.