Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

Laugardaginn 03. júní 2006, kl. 15:39:05 (8809)


132. löggjafarþing — 124. fundur,  3. júní 2006.

olíugjald og kílómetragjald o.fl.

794. mál
[15:39]
Hlusta

Dagný Jónsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að þverpólitísk samstaða hafi náðst um þetta mál. Við flutningsmenn erum sammála um sérstöðu björgunarsveita og er hér verið að tryggja góða sátt um skattaumhverfi þeirra. Ég hvet alla hv. þingmenn til að samþykkja þessa tillögu.