Ábyrgðasjóður launa

Föstudaginn 25. nóvember 2005, kl. 12:21:49 (2379)


132. löggjafarþing — 30. fundur,  25. nóv. 2005.

Ábyrgðasjóður launa.

351. mál
[12:21]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Já, því miður er það nú svo að enn finnast dæmi þess að menn kunni ekki fótum sínum forráð í rekstri. Þó ekki sé það nú alltaf ástæða gjaldþrota þá er það alla vega í sumum tilvikum og þannig háttar til í þessu tilviki að gjaldþrot urðu meiri á þessu tiltekna tímabili en menn gerðu ráð fyrir í upphafi. Það þarf, hæstv. forseti, því miður ekki mörg gjaldþrot til, mörg gjaldþrot umfram þau sem menn reikna með til þess að svona fari og þannig hygg ég nú að hafi verið í þessu tilviki, að þarna sé ekki um mörg gjaldþrot að ræða en því miður í einhverjum tilvikum stór.