Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

Fimmtudaginn 08. desember 2005, kl. 15:45:57 (2945)


132. löggjafarþing — 39. fundur,  8. des. 2005.

Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

327. mál
[15:45]
Hlusta

Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Kristján L. Möller) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get tekið undir margt sem hv. þm. Kjartan Ólafsson sagði, enda höfum við kannski svipaðar áhyggjur af þróuninni, þessu flókna kerfi sem er að flækjast meira.

Spurning mín til hv. þingmanns er ofur einföld. Miðað við það sem hann hefur sagt og aðrir hafa sagt: Styður hv. þingmaður þetta frumvarp?