Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

Fimmtudaginn 08. desember 2005, kl. 15:46:20 (2946)


132. löggjafarþing — 39. fundur,  8. des. 2005.

Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

327. mál
[15:46]
Hlusta

Kjartan Ólafsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef lýst sjónarmiðum mínum gagnvart frumvarpinu og ég hef lýst því yfir áður í þinginu að ég er ekki sannfærður um að þetta sé sú leið sem við eigum að fara. Ég mun sitja hjá við atkvæðagreiðslu frumvarpsins.