Starfsmannaleigur.
Virðulegi forseti. Sú breytingartillaga sem hér er flutt af Samfylkingunni hefur ekki í för með sér neina eðlisbreytingu á því frumvarpi sem hér liggur fyrir. Með tillögunni er verið að reyna að tryggja betur réttarstöðu þess erlenda vinnuafls sem hingað kemur m.a. til vinnu. Frumvarpið sem hér liggur fyrir getur staðið eftir sem áður í grundvallaratriðum og menn eru tilbúnir að standa að því. En þarna er um að ræða hlut sem getur tryggt betur, eins og ég sagði, réttarstöðu þess erlenda vinnuafls sem hingað kemur og ég tel eðlilegt að við tökum þetta upp hér og við látum á það reyna hvernig þingheimur stendur andspænis því.