Flm.: Sigurður Kári Kristjánsson, Birgir Ármannsson, Guðlaugur Þór Þórðarson,
Guðjón Hjörleifsson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Guðmundur Hallvarðsson,
Sólveig Pétursdóttir, Pétur H. Blöndal, Drífa Hjartardóttir.
1. gr.
98. gr. laganna orðast svo:2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Um 1. gr.
Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að núgildandi ákvæði 98. gr. laga nr. 90 7. maí 2003, um
tekjuskatt og eignarskatt, verði breytt þannig að opinber birting álagningar- og skattskráa
landsmanna verði lögð af. Núgildandi ákvæði 98. gr. leggur þá skyldu á skattstjóra landsins
að leggja álagningar- og skattskrár fram til birtingar og er þeim jafnframt gert að auglýsa
rækilega hvar og hvenær skrárnar muni liggja frammi. Jafnframt heimilar núgildandi ákvæði
98. gr. opinbera birtingu á upplýsingum úr skránum auk þess sem útgáfa og birting upplýsinga úr skattskrám er heimiluð hvort sem er í heild eða að hluta. Gerir breytingin á ákvæðinu
sem frumvarp þetta kveður á um ráð fyrir að framlagning álagningar- og skattskráa verði lögð
af. Af því leiðir að útgáfa þeirra í heild eða að hluta verður ekki lengur heimiluð. Verði frumvarpið að lögum verður einungis lögð sú skylda á skattstjóra landsins að senda hverjum
skattaðila tilkynningu um þá skatta sem á hann hafa verið lagðir þegar skattstjórar hafa lokið
álagningu á skattaðila. Jafnframt verði lögð sú skylda á skattstjóra að auglýsa rækilega, m.a.
í Lögbirtingablaðinu, að álagningu sé lokið. Verður skattstjórum síðan gert skylt að senda
viðkomandi innheimtumanni ríkissjóðs skrá um þá aðila sem á hafa verið lagðir skattar, svo
og samrit til ríkisskattstjóra og ríkisendurskoðanda.Um 2. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.