Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 480. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1015  —  480. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um brottfall laga nr. 17/1997, um Flugskóla Íslands hf.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur, Sigurberg Björnsson og Jóhann Guðmundsson frá samgönguráðuneyti.
    Nefndinni bárust skriflegar umsagnir um málið frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna, Flugfélaginu Geirfugli ehf., rannsóknarnefnd flugslysa, Flugskóla Reykjavíkur og Flugskóla Helga Jónssonar.
    Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að fella brott lög nr. 17/1997, um Flugskóla Íslands hf. Þetta er gerð með hliðsjón af efni laganna og að ríkið hefur selt allt hlutafé sitt í skólanum. Skilvirkt eftirlit er af hálfu Flugmálastjórnar Íslands með gæðum skólastarfsins og starfsemi skólans og er það talinn fullnægjandi rammi um þessa starfsemi.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Jón Bjarnason sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hann andvígur áliti þessu.
    Þórunn Sveinbjarnardóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 27. mars 2006.



Guðjón Hjörleifsson,


frsm.


Lára Margrét Ragnarsdóttir.


Anna Kristín Gunnarsdóttir.



Ísólfur Gylfi Pálmason.


Kristján L. Möller.


Sigurrós Þorgrímsdóttir.



Guðjón A. Kristjánsson,


með fyrirvara.


Magnús Stefánsson.