Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 575. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1123  —  575. mál.




Nefndarálit



um frv. til lokafjárlaga fyrir árið 2004.

Frá 1. minni hluta fjárlaganefndar.



    Nefndin hefur haft frumvarpið til athugunar og í því skyni leitað skýringa hjá fjármálaráðuneyti varðandi beiðnir um auknar fjárheimildir. Enn fremur var óskað eftir áliti frá Ríkisendurskoðun.
    Breyting skv. 1. gr. frumvarpsins er 1.243,4 m.kr. vegna frávika ríkistekna frá áætlun fjárlaga og afgangsheimildir og umframgjöld sem falla niður skv. 2. gr. nema 13.517,2 m.kr. 1. minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 4. apríl 2006.



Magnús Stefánsson,


form., frsm.


Einar Oddur Kristjánsson.


Drífa Hjartardóttir.



Bjarni Benediktsson.


Guðmundur Hallvarðsson.