Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 297. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1141  —  297. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um samstarf Vestur-Norðurlanda um markmið í fiskveiðimálum gagnvart Evrópusambandinu.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þórð Þórarinsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins.
    Málið var sent til umsagnar og bárust umsagnir frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Hafrannsóknastofnuninni, Landssambandi íslenskra útvegsmanna og Landssambandi smábátaeigenda.
    Með tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að efla samstarf Vestur-Norðurlanda í fiskveiðimálum gagnvart Evrópusambandinu. Með ályktun nr. 2/2004 á ársfundi 20.–24. ágúst 2004 samþykkti Vestnorræna ráðið að mælast til þess að ríkisstjórn Íslands og landsstjórnir Færeyja og Grænlands beiti sér fyrir aðgerðum sem hafi þann tilgang að efla samstarf Vestur-Norðurlanda varðandi ýmis úrlausnarefni í tengslum við stefnu í fiskveiðimálum gagnvart Evrópusambandinu.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 5. apríl 2006.



Halldór Blöndal,


form., frsm.


Össur Skarphéðinsson.


Magnús Stefánsson.



Drífa Hjartardóttir.


Jón Gunnarsson.


Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.