Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 299. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1143  —  299. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um eflingu samstarfs vestnorrænna landa í orkumálum.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þórð Þórarinsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins.
    Tillagan var send til umsagnar og bárust umsagnir frá Orkustofnun og Samorku.
    Með tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að efla samstarf vestnorrænna landa í orkumálum. Með ályktun nr. 1/2004 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins 20.–24. ágúst 2004 var skorað á ríkis- og landsstjórnir Vestur-Norðurlanda að efna til samstarfs um orkumál þjóðanna, með áherslu á sjálfbæra nýtingu orkuauðlinda. Jafnframt var þess óskað að árlegri skýrslu yrði skilað um framvindu samvinnunnar.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 5. apríl 2006.



Halldór Blöndal,


form., frsm.


Össur Skarphéðinsson.


Magnús Stefánsson.



Drífa Hjartardóttir.


Jón Gunnarsson.


Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.