Ađrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Ţingskjal 1215, 132. löggjafarţing 771. mál: atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES og atvinnuréttindi útlendinga (ríkisborgarar nýrra ađildarríkja).
Lög nr. 21 28. apríl 2006.

Lög um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvćđisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvćđisins.
1. gr.
     Ákvćđi til bráđabirgđa í lögunum, sbr. lög nr. 19/2004, orđast svo:
     Ţrátt fyrir ákvćđi 3. gr. reglugerđar ráđsins (EBE) nr. 1612/68, um frelsi launţega til flutninga innan bandalagsins, ásamt síđari breytingum, ađ ţví er varđar atvinnu- og búseturétt ríkisborgara Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklands og Ungverjalands, skal atvinnurekandi sem hefur ráđiđ ţá til starfa tilkynna um ţađ til Vinnumálastofnunar fram til 1. maí 2009 samkvćmt bráđabirgđaákvćđi laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, međ síđari breytingum. Hiđ sama gildir um ađstandendur ţessara ríkisborgara skv. 10. og 11. gr. reglugerđar ráđsins (EBE) nr. 1612/68 á tímabilinu.

II. KAFLI
Breytingar á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.
2. gr.
     Á eftir 16. gr. laganna kemur ný grein, 16. gr. a, svohljóđandi:
Međferđ upplýsinga.
     Fái Vinnumálastofnun upplýsingar sem gefa til kynna ađ brotiđ sé gegn íslenskum lögum og reglum er stofnuninni heimilt ađ afhenda hlutađeigandi eftirlitsstjórnvaldi eđa lögreglu, eftir atvikum, upplýsingarnar.
     Heimilt er viđ vinnslu upplýsinga ađ samkeyra upplýsingar Vinnumálastofnunar, Útlendingastofnunar, lögreglu og skattyfirvalda í ţeim tilgangi ađ kanna hvort atvinnurekendur sem hafa ráđiđ útlendinga til starfa hafi fariđ ađ lögum ţessum enda sé um ađ rćđa afmörkuđ verkefni en ekki viđvarandi samkeyrslu. Ađ öđru leyti fer um međferđ persónuupplýsinga samkvćmt lögum um persónuvernd og međferđ persónuupplýsinga.

3. gr.
     Ákvćđi til bráđabirgđa í lögunum, sbr. lög nr. 19/2004, orđast svo:
     Ţrátt fyrir ákvćđi a-liđar 14. gr. skal atvinnurekandi tilkynna til Vinnumálastofnunar um ráđningu ríkisborgara Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklands eđa Ungverjalands til starfa fram til 1. maí 2009. Í tilkynningunni skal koma fram nafn atvinnurekanda, kennitala og heimilisfang ásamt nafni útlendingsins, kennitölu og ađsetri hans hér á landi. Enn fremur skal fylgja tilkynningunni ráđningarsamningur sem tryggi útlendingnum laun og önnur starfskjör samkvćmt íslenskum lögum og kjarasamningum. Tilkynningin skal berast Vinnumálastofnun innan tíu virkra daga frá ráđningu. Vinnumálastofnun skal halda skrá yfir ţá útlendinga sem koma frá framangreindum ríkjum til ađ starfa hér á landi.
     Ef atvinnurekandi lćtur hjá líđa ađ senda Vinnumálastofnun tilkynningu skv. 1. mgr. getur stofnunin ákveđiđ ađ atvinnurekandi greiđi dagsektir ţar til tilkynning berst stofnuninni. Ákvörđun um dagsektir skal tilkynnt bréflega á sannanlegan hátt ţeim sem hún beinist ađ.
     Dagsektir mega nema allt ađ 50.000 kr. á sólarhring. Viđ ákvörđun fjárhćđar dagsekta skal m.a. líta til fjölda starfsmanna sem atvinnurekandi lét hjá líđa ađ tilkynna um og hversu stór og umsvifamikill viđkomandi atvinnurekstur er.
     Dagsektir skulu renna í ríkissjóđ.
     Ákvarđanir Vinnumálastofnunar um dagsektir eru ađfararhćfar. Málskot til félagsmálaráđuneytis skv. 24. gr. frestar ađför.
     Vinnumálastofnun skal afhenda stéttarfélagi í viđkomandi starfsgrein á svćđi ţví sem útlendingur skv. 1. mgr. starfar á afrit af ráđningarsamningi útlendingsins óski stéttarfélagiđ eftir ţví enda liggi fyrir grunur um brot á gildandi kjarasamningi.
     Ákvćđi ţetta gildir til 1. maí 2009.

III. KAFLI
Gildistaka.
4. gr.
     Lög ţessi öđlast gildi 1. maí 2006.

Samţykkt á Alţingi 28. apríl 2006.