Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 671. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1216  —  671. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fullgildingu samnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Suður-Kóreu.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Grétar Má Sigurðsson frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að fullgilda samning milli ríkja Fríverslunar- samtaka Evrópu (EFTA) og Lýðveldisins Suður-Kóreu sem undirritaður var í Hong Kong 15. desember 2006. Samningurinn kveður á um afnám tolla á iðnaðarvörum, sjávarafurðum og unnum landbúnaðarvörum. Þá inniheldur samningurinn ákvæði um þjónustuviðskipti, vernd hugverkaréttinda, samkeppnismál, opinber innkaup, samkeppnismál og úrlausn deilumála.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.


Alþingi, 19. apríl 2006.



Halldór Blöndal,


form., frsm.


Össur Skarphéðinsson.


Magnús Stefánsson.



Drífa Hjartardóttir.


Jón Gunnarsson.


Bjarni Benediktsson.