Verðlagsstofa skiptaverðs o.fl.

Föstudaginn 16. mars 2007, kl. 18:53:32 (6667)


133. löggjafarþing — 91. fundur,  16. mars 2007.

Verðlagsstofa skiptaverðs o.fl.

644. mál
[18:53]
Hlusta

Frsm. sjútvn. (Guðjón Hjörleifsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Samkvæmt upplýsingum forstöðumanns Verðlagsstofu hafa engin lögreglumál komið upp. Þetta eru fá mál og þau má kannski leysa á þeim tíma sem menn hafa í þessu.

En þegar menn leita réttar síns þá tel ég að það sé algengt að menn fari með málið í gegnum stéttarfélag sitt og síðan verður það dómsmál ef menn ná ekki sáttum.