Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

Föstudaginn 08. desember 2006, kl. 23:52:59 (2962)


133. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2006.

olíugjald og kílómetragjald o.fl.

357. mál
[23:52]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald o.fl., með síðari breytingum, sem er að finna á þingskjali 544 frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þórð Reynisson frá fjármálaráðuneyti og Bryndísi Kristjánsdóttur frá embætti Skattrannsóknarstjóra ríkisins. Nefndinni bárust einnig umsagnir um málið.

Með frumvarpinu er einkum verið að bregðast við agnúum sem komið hafa í ljós frá því að ný lög um olíugjald og kílómetragjald komu til framkvæmda 1. júlí 2005. Með frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að kveðið verði með skýrum hætti á um að sala olíu um borð í varðskip og skip sem notuð eru í atvinnurekstri og skráð sex metrar eða lengri sé undanþegin olíugjaldi. Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á ákvæðum sem snúa að endurákvörðun, refsingum, kæruheimild, málsmeðferð og eftirliti. Stefnt er að því að refsiákvæði verði gagnsærri og beiting þeirra skilvirkari. Í þriðja lagi er lagt til að tímabundin lækkun olíugjalds verði framlengd.

Nefndin mælist til þess að gert verði átak í að kynna hlutaðeigandi aðilum gjörbreyttar refsireglur.

Hv. þm. Ögmundur Jónasson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Nefndin leggur til eina breytingu tæknilegs eðlis.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Pétur H. Blöndal, Jóhanna Sigurðardóttir, með fyrirvara, Dagný Jónsdóttir, Lúðvík Bergvinsson, með fyrirvara, Birgir Ármannsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, með fyrirvara, Ásta Möller og Sæunn Stefánsdóttir.