d.
4. mgr. orðast svo:
Úrskurðir kærunefndar eru bindandi gagnvart málsaðilum. Að kröfu málsaðila getur
nefndin ákveðið að fresta réttaráhrifum úrskurðar telji hún ástæðu til þess. Krafa þess
efnis skal gerð eigi síðar en 10 dögum frá birtingu úrskurðar. Skal frestun á
réttaráhrifum úrskurðar vera bundin því skilyrði að málsaðili beri málið undir dómstóla
innan 30 daga frá frestunarúrskurði og óski þá eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er
beiðni um flýtimeðferð synjað og skal mál þá höfðað eins fljótt og auðið er eftir að
synjun kemur fram. Frestun réttaráhrifa úrskurðar fellur úr gildi ef mál er ekki höfðað
innan 30 daga. Sé mál höfðað vegna úrskurðar nefndarinnar er henni heimilt að fresta
afgreiðslu sambærilegra mála, sem eru til meðferðar hjá henni, þar til dómur gengur í
málinu.
e.
Í stað orðanna „álit sín“ í 5. mgr. kemur: úrskurði sína.