Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 186. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 474  —  186. mál.




Nefndarálit


um frv. til l. um breyt. á ýmsum lögum vegna flutnings verkefna frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti til sýslumannsembætta.

Frá allsherjarnefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Rögnu Árnadóttur og Bryndísi Helgadóttur frá dómsmálaráðuneyti, Stefán Skarphéðinsson og Áslaugu Þórarinsdóttur frá Sýslumannafélagi Íslands, Brynjólf Sigurðsson frá Happdrætti Háskóla Íslands, Ingibjörgu Jónsdóttur og Guðrúnu Sveinsdóttur frá Íslenskri ættleiðingu og Grétar Jónasson og Ingibjörgu Þórðardóttur frá Félagi fasteignasala. Umsagnir bárust um málið frá Íslenskri getspá sf., Íslenskri ættleiðingu, Sýslumannafélagi Íslands, ríkislögreglustjóranum, Happdrætti Háskóla Íslands, Lögmannafélagi Íslands, bótanefnd og Félagi fasteignasala.
    Í frumvarpinu er lagt til að tiltekin verkefni sem dómsmálaráðuneyti hefur til þessa haft með höndum verði flutt yfir til smærri sýslumannsembætta víðs vegar um landið. Þau verkefni varða einkum sjóði og skipulagsskrár, allsherjarskrá um kaupmála, leyfi til að reka útfararþjónustu, málefni bótanefndar, leyfi til að annast öryggisþjónustu í atvinnuskyni, leyfi til ættleiðingar, löggildingu dómtúlka og skjalaþýðenda, löggildingu fasteignasala, útgáfu Lögbirtingablaðs og happdrættisleyfi og eftirlit með happdrættum. Með þessu er ætlunin að styrkja embættin ásamt því að gera afgreiðslu mála fljótlegri og skilvirkari. Þannig verður ráðuneytið betur í stakk búið til að sinna öðrum verkefnum.
    Nefndin áréttar að gert er ráð fyrir því í frumvarpinu að ákvarðanir sýslumanna í þeim verkefnum sem ætlunin er að flytja verða samkvæmt almennum reglum kæranlegar til dómsmálaráðuneytis. Þannig telur nefndin ákvæði frumvarpsins stuðla að auknu réttaröryggi í stjórnsýslunni.
    Nefndin leggur til að við frumvarpið verði bætt kafla sem breytir 4. og 5. tölul. 4. gr. laga um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54/1962, með síðari breytingum. Þar er nú gert ráð fyrir því að almannaskráning byggist m.a. á gögnum dómsmálaráðuneytis um ættleiðingarleyfi og að sýslumenn gefi Þjóðskrá skýrslur um hjónavígslur, leyfi til skilnaðar að borði og sæng og leyfi til lögskilnaðar. Nefndin leggur annars vegar til að við ákvæðið verði bætt áskilnaði um að sýslumenn skuli veita Þjóðskrá skýrslur og gögn um ættleiðingarleyfi og að ákvæði um að dómsmálaráðuneyti fari með gögn um ættleiðingarleyfi verði þar af leiðandi fellt niður. Auk þess leggur nefndin til að inn í ákvæðið verði bætt áskilnaði um að sýslumenn skili til Þjóðskrár gögnum um staðfestar samvistir sem hafa að sjálfsögðu sama vægi við almannaskráningu og upplýsingar um önnur þau tilvik sem talin eru upp í greininni.
    Nefndin leggur einnig til breytingu á 24. gr. frumvarpsins, en þar er gert ráð fyrir að leyfi lögreglustjóra þurfi til að halda hlutaveltu sem er óbreytt frá núverandi fyrirkomulagi, sbr. 2. gr. laga um happdrætti, nr. 38/2005. Með hliðsjón af þeim breytingum á skipan lögreglumála sem taka gildi um næstu áramót, sbr. lög nr. 46/2006, sem m.a. fela það í sér að ekki fara allir sýslumenn með lögreglustjórn, telur nefndin rétt að færa þessa leyfsiveitingu til sýslumanna.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með fyrrnefndum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    Guðjón Ólafur Jónsson, Sigurður Kári Kristjánsson og Björgvin G. Sigurðsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Kolbrún Halldórsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 27. nóv. 2006.


Bjarni Benediktsson,

form., frsm.

Ágúst Ólafur Ágústsson.

Birgir Ármannsson.


Guðrún Ögmundsdóttir.

Kjartan Ólafsson.

Sigurjón Þórðarson.