Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 350. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 653  —  350. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 9. des.)



1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Til þess að standa straum af kostnaði Fasteignamats ríkisins við að halda og þróa Landskrá fasteigna skulu húseigendur greiða til þess sérstakt umsýslugjald á árinu 2007. Skal gjald þetta nema 0,1‰ (prómilli) af brunabótamati hverrar húseignar. Skal vátryggingafélag innheimta gjaldið samhliða innheimtu brunatryggingariðgjalda og skila því til Fasteignamats ríkisins eigi síðar en 45 dögum eftir gjalddaga.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2007.