Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 276. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 694  —  276. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 90/2003, um tekjuskatt, og lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, með síðari breytingum.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur, Ágústi Ólafi Ágústssyni og Lúðvík Bergvinssyni.



    Við 2. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hið sama gildir um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. lög nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.