Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 79. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 949  —  79. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um sameignarfélög.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Áslaugu Björgvinsdóttur, dósent í Háskólanum í Reykjavík og höfund frumvarpsins, Guðmund Guðbjarnason, Ingvar Rögnvaldsson og Skúla Eggert Þórðarson frá embætti ríkisskattstjóra og Jón Ögmund Þormóðsson frá viðskiptaráðuneyti. Nefndinni bárust auk þess umsagnir um frumvarpið.
    Með frumvarpinu er stefnt að setningu fyrstu heildarlöggjafar um sameignarfélög. Í sameignarfélögum er um að ræða félagsform þar sem samstarfið byggist á persónulegum forsendum og oft nánu sambandi milli félagsmanna enda bera félagsmenn beina, ótakmarkaða og óskipta ábyrgð á öllum skuldbindingum félagsins. Það hefur verið talinn bæði kostur og ókostur þessa félagaforms að ekki hefur verið við heildstæðar reglur að styðjast. Markmið frumvarpsins er að setja reglur sem skýra réttarstöðu sameignarfélaga, einkum þegar ekki liggja fyrir ákvæði í félagssamningi, en viðhalda samningsfrelsi að mestu leyti. Einnig eru með frumvarpinu lagðar til skýrar reglur um innbyrðis samband félagsmanna og stöðu viðsemjenda þeirra.
    Í 3. gr. frumvarpsins er kveðið á um að ákvæði III. kafla frumvarpsins um stjórnkerfi og réttarstöðu félagsmanna séu frávíkjanleg en önnur ákvæði verða ófrávíkjanleg, nema annað komi fram. Með öðrum orðum er meginregla frumvarpsins sú að reglur um innra skipulag og innbyrðis réttarsamband félagsmanna eru frávíkjanlegar. Mikið samningsfrelsi hefur ríkt um innri málefni sameignarfélaga og er eitt af markmiðum frumvarpsins að tryggja það áfram auk þess sveigjanleika sem félagsformið býr yfir. Þau ákvæði sem einkum eru ófrávíkjanleg eru þau sem kveða á um réttarsamband félagsins og félagsmanna út á við.
    Í frumvarpinu er gerður greinarmunur á skráðum og óskráðum sameignarfélögum. Gert er ráð fyrir nýjum reglum um skráningu sameignarfélaga og verði frumvarpið samþykkt verður skylt að skrá í firmaskrá þau sameignarfélög sem stunda atvinnurekstur eða eru alfarið í eigu lögaðila. Einnig verður heimilt að óska skráningar þótt það sé ekki skylt.
    Í 2. mgr. 21. gr. frumvarpsins er kveðið á um þá frávíkjanlegu meginreglu að hagnaði og tapi skuli skipt milli félagsmanna eftir eignarhlutföllum en ef þau verða ekki ráðin af félagssamningi skuli hagnaði og tapi skipt jafnt á milli félagsmanna. Sama regla gildir um skiptingu endurgreiðslu félagsmanna til félagsmanns sem þurft hefur að greiða félagsskuld og kostnað sem af því leiðir skv. 2. mgr. 22. gr. Um skiptingu endurgreiðslukröfunnar gildir regla 21. gr. um skiptingu hagnaðar og taps, þ.e. endurgreiðslunni skal skipt milli félagsmanna eftir eignarhlutföllum ef þau verða ráðin af félagssamningi en annars jafnt. Ranglega segir því í lok athugasemda við 22. gr. frumvarpsins að greiðslan skiptist skv. 21. gr. jafnt á milli félagsmanna sé ekki um annað samið í félagssamningi.
    Ákvæði 31. gr. um að félagsaðild erfist ekki leiðir af því hve persónulegt samstarfið er eins og fram kemur í athugasemdum við greinina. Að jafnaði eru það einstaklingsbundnar forsendur sem ráða hverjir veljast saman til samstarfs í sameignarfélagi og því er ekki talið rétt að félagsréttindi erfist almennt með svipuðum hætti og m.a. hlutabréf. Þetta þekkist t.d. úr samvinnufélagalöggjöfinni, sbr. 17. gr. samvinnufélagalaga þar sem kveðið er á um að félagsréttindi séu hvorki framseljanleg né erfist. Í athugasemdum við 31. gr., þar sem segir að með tilliti til hagsmuna félagsmanna sé reglan sú að án sérstakrar heimildar í félagssamningi geti „eignarhluti“ í sameignarfélagi ekki gengið að erfðum til annars aðila, hefði e.t.v. verið skýrara að tala um félagsréttindi, enda eiga erfingjar rétt til greiðslu nettóeignarhluta hins látna í félaginu, sbr. 2. mgr. 31. gr. Reglan er hins vegar frávíkjanleg eins og fram kemur í 3. mgr. 31. gr. Regla 31. gr. er einnig í samræmi við ólögfestar reglur dansks réttar en samkvæmt þeim gengur dánarbú ekki inn sem félagsmaður og getur ekki krafist slita félagsins 1 . Aðrir félagsmenn gætu hins vegar mögulega krafist félagsslita, sbr. b-lið 1. mgr. 38. gr. frumvarpsins.
    Helstu athugasemdir í umsögnum til nefndarinnar lutu annars vegar að því að ekki væru gerðar breytingar á því fyrirkomulagi að sameignarfélög séu skráð í firmaskrá og hins vegar að því að ekki væru ákvæði um samlagsfélög í frumvarpinu. Nefndin tekur undir þá skoðun að æskilegt sé að gerðar verði breytingar í þá veru að skráning sameignarfélaga verði flutt til ríkisskattstjóra í eina miðlæga skrá fyrir landið þrátt fyrir að umfang skráningar sé mjög lítið. Til að það sé unnt verður hins vegar að skoða ákvæði annarra laga, svo sem laga um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð, nr. 42/1903, og líklega fella þau lög brott. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt að þessu leyti en mælist til þess að sem fyrst verði farið yfir þær breytingar sem þarf að gera í þessu skyni enda hlýtur hagræði að vera fólgið í því að hafa eina miðlæga skrá fyrir þessa tegund félaga líkt og er um t.d. hlutafélög. Þá getur nefndin einnig tekið undir þau sjónarmið að heppilegt væri að setja reglur um samlagsfélög í sama lagabálk og sameignarfélög svo sem dæmi eru um frá nálægum ríkjum. Í íslenskri löggjöf má sjá þess stað að samlagsfélagaformið sé til og viðurkennt, sbr. lög um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð, nr. 42/1903. Þar er hugtakið samlagsfélag skilgreint í a-lið 33. gr., auk þess sem í 3. mgr. 9. gr. er kveðið á um að firma samlagsfélags skuli hið minnsta vera nafn eins félagsmanns sem hafi ótakmarkaða ábyrgð með viðauka sem bendi á félagsskap eða gefi til kynna að félagið sé samlagshlutafélag, ef tillög samlagsmanna eru í hlutabréfum. Þar sem sameignarfélög og samlagsfélög eru þó ekki það eðlislík að með einföldum hætti væri unnt að fella þau undir það frumvarp sem hér er til meðferðar telur nefndin að aðeins þurfi að doka við og skoða vel lagatæknilega hvernig væri best að fella ákvæði um samlagsfélög inn í íslenska löggjöf.
    Nefndin leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu:
     1.      Er í fyrsta lagi lögð til breyting á orðalagi 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. frumvarpsins. Er með þessu hnykkt á því að 2. tölul. taki til óskráðra félaga en nefndinni þótti ákvæði frumvarpsins óljóst að þessu leyti.
     2.      Þá leggur nefndin til að orðin „íslenska ríkið og stofnanir þess“ í 6. gr. falli brott enda felast íslenska ríkið og stofnanir þess í hugtakinu lögaðili.
     3.      Lögð er til viðbót við 5. tölul. 2. mgr. 7. gr., þ.e. að um sjálfstæðan skattaðila verði vísað til ákvæða laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.
     4.      Í fjórða lagi er lögð til orðalagsbreyting á 1. málsl. 2. mgr. 22. gr. frumvarpsins í þá veru að vísað verði til „annarra félagsmanna“ í stað „hvers og eins félagsmanns“. Þetta er orðalagsbreyting sem gerð er til nánari skýringar.
     5.      Lagðar eru til nokkrar breytingar á 30. gr. frumvarpsins. Er í fyrsta lagi lagt til að í 2. málsl. 2. mgr. komi „framseljandi“ í stað „framsalshafa“ eins og ranglega kom fram í frumvarpstexta. Í öðru lagi er lögð til orðalagsbreyting á 1. málsl. 3. mgr. til að hnykkja á því að um sé að ræða skuldbindingar sem stofnuðust fyrir eigendaskipti en ekki við eigendaskipti og er auk þess bætt við að unnt sé að kveða á um annað í félagssamningi.
     6.      Jafnframt leggur nefndin til að við 4. mgr. 32. gr. bætist nýr málsliður um réttaráhrif úrsagnar, þ.e. við hvaða tímamark beri að miða.
     7.      Lagðar eru til tvær breytingar á 39. gr. Annars vegar er lagt til að firmaskrá hafi með höndum þau verkefni sem kveðið er á um í 1. og 2. málsl. 2. mgr. Hins vegar er lagt til að 3. málsl. 2. mgr. verði sér málsgrein.
     8.      Þá leggur nefndin til viðbót við 40. gr. um ábyrgð skilanefndarmanna, þ.e. að þeir ábyrgist það tjón sem þeir kunni að valda í störfum sínum af ásetningi eða stórfelldu gáleysi.
     9.      Lagðar eru til nokkrar breytingar á 45. gr. Er í fyrsta lagi lagt til að við 1. mgr. verði bætt málslið þess efnis að tilkynningu til firmaskrár skuli fylgja tilskilin gögn. Í öðru lagi er lagt til að hnykkt verði á því í 5. mgr. að fyrir hönd félagsins megi krefjast skráningar í firmaskrá þrátt fyrir að sameignarfélag stundi ekki atvinnurekstur. Í þriðja lagi er lagt til að í stað orðsins „tölvutæku“ í 7. mgr. komi „rafrænu“.
     10.      Lagðar eru til orðalagsbreytingar á 51. gr. og 53. gr. Er þetta gert til nánari skýringar.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    Lúðvík Bergvinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Jóhanna Sigurðardóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson skrifa undir álit þetta með fyrirvara.

Alþingi, 20. febr. 2007.



Pétur H. Blöndal,


form., frsm.


Jóhanna Sigurðardóttir,


með fyrirvara.


Ólafur Níels Eiríksson.



Birgir Ármannsson.


Ágúst Ólafur Ágústsson,


með fyrirvara.


Ásta Möller.



Sæunn Stefánsdóttir.


Ögmundur Jónasson.

Neðanmálsgrein: 1
    1 Sören Friis Hansen, Dansk selskabsret 3, 2004.