Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 573. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1029  —  573. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2006, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Berglindi Ásgeirsdóttur og Nínu Björk Jónsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Jón Ögmund Þormóðsson frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 59/2006 frá 2. júní 2006, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/68/EB frá 16. nóvember 2005 um endurtryggingu og um breytingu á tilskipunum ráðsins 73/239/EBE og 92/49/EBE, svo og tilskipunum 98/78/EB og 2002/83/EB.
    Tilskipun 2005/68/EB gildir um sjálfstæðan rekstur endurtrygginga af hálfu endurtryggingafélaga sem aðeins stunda endurtryggingar og staðsett eru innan Evrópusambandsins og síðar Evrópska efnahagssvæðisins eftir að tilskipunin hefur verið felld inn í EES-samninginn og mælir fyrir um hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að geta hafið rekstur endurtryggingafélags.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og þurfa nauðsynlegar breytingar að hafa tekið gildi eigi síðar en 10. desember 2007.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 28. febr. 2007.



Jón Kristjánsson,


varaform., frsm.


Össur Skarphéðinsson.


Jón Gunnarsson.



Þórunn Sveinbjarnardóttir.


Sigurrós Þorgrímsdóttir.