Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 449. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1094  —  449. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2006, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Berglindi Ásgeirsdóttur og Nínu Björk Jónsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Lilju Sturludóttur frá fjármálaráðuneyti.
    Umsögn um málið barst frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 88/2006 frá 7. júlí 2006, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í hann tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/41/EB frá 3. júní 2003 um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri.
    Markmið tilskipunarinnar er að stuðla að hagkvæmum fjárfestingum og tryggri ávöxtun, tryggja réttindi sjóðfélaga og annarra rétthafa, gera kleift að bjóða þjónustu yfir landamæri, stuðla að faglegri stjórnun, tryggja samkeppni, koma á gagnkvæmri viðurkenningu eftirlitsaðila innan ESB, skapa forsendur fyrir öflugri innri markaði fyrir lífeyrissparnað o.fl. Samkvæmt a-lið 2. gr. tilskipunarinnar eru stofnanir sem stýra almannatryggingakerfi og falla undir reglugerð (EBE) nr. 1408/71 undanþegnar gildissviði hennar. Íslenska lífeyrissjóðakerfið byggist á þeirri reglugerð og fellur þar af leiðandi utan gildissviðsins nema að því marki sem ekki er um skyldubundnar starfstengdar lífeyrisgreiðslur að ræða.
    Ákvörðunin kallar á lagabreytingar hér á landi. Fjármálaráðherra hefur þegar lagt fram frumvarp til laga um starfstengda eftirlaunasjóði (þskj. 844, 568. mál) til að innleiða efni þessarar tilskipunar. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis afgreiddi málið frá sér með nefndaráliti 8. mars sl. og mælti með samþykkt frumvarpsins.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 9. mars 2007.



Jón Kristjánsson,


varaform., frsm.


Össur Skarphéðinsson.


Drífa Hjartardóttir.



Þórunn Sveinbjarnardóttir.


Sæunn Stefánsdóttir.


Guðjón A. Kristjánsson.