Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 77. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1139  —  77. mál.




Breytingartillaga



við till. til þál. um samvinnu vestnorrænna landa og upplýsingamiðlun í baráttunni gegn reykingum.

Frá Jóni Kristjánssyni.



    Tillögugreinin orðist svo:
    Alþingi skorar á ríkisstjórnina, með hliðsjón af ályktun Vestnorræna ráðsins á ársfundi 2006, að auka samvinnu við landsstjórnir Færeyja og Grænlands í baráttunni gegn reykingum. Upplýsingamiðlun milli landanna verði efld og haldin námsstefna fyrir vestnorrænar heilbrigðisstéttir um málið.