Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 649. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1224  —  649. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2006, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES- samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Martin Eyjólfsson og Nínu Björk Jónsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Áslaugu Árnadóttur og Ólöfu Emblu Einarsdóttur frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 93/2006 frá 7. júlí 2006, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/29/EB frá 11. maí 2005 um óréttmæta viðskiptahætti gagnvart neytendum á innri markaðnum og um breytingu á tilskipun ráðsins 84/450/EBE, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 97/7/EB, 98/27/EB og 2002/65/EB og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2006/2004.
    Tilgangur tilskipunarinnar er að auka virkni innri markaðarins og stuðla að háu stigi neytendaverndar með því að samræma lög, reglur og stjórnvaldsfyrirmæli um óréttmæta viðskiptahætti sem skaða hagsmuni neytenda og að mæla fyrir um fulla samræmingu á þeim sviðum sem tilskipunin tekur til. Innleiðing hennar mun m.a. fela í sér að útlista þarf nákvæmlega hvers konar viðskiptahættir teljist óréttmætir, villandi eða uppáþrengjandi. Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og þarf að innleiða efni hennar fyrir 12. júní 2007. Samkvæmt upplýsingum sem nefndin hefur aflað verður lagafrumvarp hins vegar ekki lagt fram fyrr en á haustþingi.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 6. mars 2007.



Halldór Blöndal,


form., frsm.


Jón Kristjánsson.


Jón Gunnarsson.



Drífa Hjartardóttir.


Bjarni Benediktsson.


Þórunn Sveinbjarnardóttir.



Sæunn Stefánsdóttir.


Steingrímur J. Sigfússon.