Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 221. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Prentað upp.

Þskj. 1241  —  221. mál.
Leiðréttur texti.




Nefndarálit



um till. til þál. um skipulagða leit að krabbameini í ristli.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Með tillögu þessari er lagt til að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefji, í samráði við landlækni, undirbúning að skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi þannig að skipuleg leit hefjist 1. júlí 2007. Krabbamein í ristli og endaþarmi er næstalgengasta krabbameinið meðal Íslendinga og önnur algengasta dánarorsökin af völdum krabbameina. Niðurstöður erlendra rannsókna hafa sýnt fram á að fækka megi dauðsföllum af völdum ristilkrabbameins með skipulagðri skimun. Því fyrr sem meinið greinist, því meiri líkur eru á lækningu. Ýmis nágrannalönd hafa þegar tekið upp skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi eða eru að undirbúa slíkt. Nefndin telur brýnt að skimun fyrir ristilkrabbameini verði tekin upp hið fyrsta í íslensku heilbrigðiskerfi.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    Í stað dagsetningarinnar „1. júlí 2007“ komi: á árinu 2008.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Kristján L. Möller var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Valdimar L. Friðriksson áheyrnarfulltrúi er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 15. mars 2007.



Guðjón Ólafur Jónsson,


form., frsm.


Ásta Möller.


Ásta R. Jóhannesdóttir.



Guðrún Ögmundsdóttir.


Ingvi Hrafn Óskarsson.


Drífa Hjartardóttir.



Sæunn Stefánsdóttir.


Þuríður Backman.