Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 178. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1333  —  178. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Umsagnir bárust frá Frama, bifreiðastjórafélagi, ríkissaksóknara, ríkislögreglustjóra, Landssambandi lögreglustjóra, Umferðarstofu og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
    Með frumvarpi þessu er lagt til að refsing verði lögð við því að aðrir en fatlaðir stöðvi ökutæki eða leggi því á merktu svæði fyrir bifreiðir fatlaðra. Til að ná því markmiði er lögð til leiðrétting á ákvæði 2. gr. frumvarpsins.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svohljóðandi

BREYTINGU:



    Við 2. gr. Greinin orðist svo:
    2. mgr. 100. gr. laganna orðast svo:
    Eigi skal þó refsa fyrir brot, sem tilgreind eru í 1. mgr. 108. gr., að j-lið 1. mgr. 28. gr. undanskildum, sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr., nema stöðvun eða lagning ökutækis hafi haft í för með sér hættu fyrir aðra eða að óþörfu valdið óþægindum fyrir umferðina.

    Kristján L. Möller og Þórunn Sveinbjarnardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Jón Bjarnason var áheyrnarfulltrúi við afgreiðslu málsins og er hann samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 17. mars 2007.



Guðmundur Hallvarðsson,


form., frsm.


Herdís Á. Sæmundardóttir.


Anna Kristín Gunnarsdóttir.



Guðjón Hjörleifsson.


Sigurrós Þorgrímsdóttir.


Jón Kristjánsson.



Guðjón A. Kristjánsson.