Viðauki við fjögurra ára samgönguáætlun 2007--2010

Fimmtudaginn 17. apríl 2008, kl. 22:09:22 (6709)


135. löggjafarþing — 93. fundur,  17. apr. 2008.

viðauki við fjögurra ára samgönguáætlun 2007--2010.

519. mál
[22:09]
Hlusta

Grétar Mar Jónsson (Fl) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég get tekið undir orð hv. síðasta ræðumanns, Ögmundar Jónassonar, og tel að við ættum að hætta þingstörfum í kvöld. Það var fallist á það í atkvæðagreiðslu í morgun að vera fram á kvöldið. Ég skildi það svo að það væri kannski til klukkan átta eða níu en nú er klukkan farin að ganga ellefu og ég held að við ættum að fara að stoppa núna.