Viðauki við fjögurra ára samgönguáætlun 2007--2010

Fimmtudaginn 17. apríl 2008, kl. 22:52:32 (6723)


135. löggjafarþing — 93. fundur,  17. apr. 2008.

viðauki við fjögurra ára samgönguáætlun 2007--2010.

519. mál
[22:52]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Þetta var nú ekki andsvar. Þetta var eiginlega meðsvar þannig að ég get nú eiginlega ekki svarað því. En auðvitað ætti svona tillögu að fylgja bæði lagafrumvarp, fjárlagafrumvarp í rauninni og lánsfjárlög inni í því.