Lengd þingfundar

Fimmtudaginn 22. maí 2008, kl. 11:11:07 (7652)


135. löggjafarþing — 106. fundur,  22. maí 2008.

lengd þingfundar.

[11:11]
Hlusta

Atli Gíslason (Vg):

Frú forseti. Samþykkt var að fundi yrði haldið áfram í dag á þingi þar til dagskrá yrði tæmd. Vegna skipulagningar, fjölskyldumála minna og annarra spyr ég frú forseta að því hvort hún hyggist setja þessum umræðum tímamörk í kvöld, hvort vænta megi þess að umræðan standi fram yfir 10, fram yfir miðnætti eða jafnvel fram á nótt.