grunnskólar.
Herra forseti. Mig langar örstutt að gera athugasemd við ræðu hv. þm. Árna Johnsens þar sem hann fjallaði sérstaklega um það sem lagt er til að standi í lögum um grunnskóla um kristna arfleifð íslenskrar menningar, þar sem hann telur það vera útþynnt hugtak frá því sem hann hefði gjarnan viljað sjá og hefur verið í grunnskólalögum. Má ég þá minna á að mörgum finnst að það sem stendur í breytingartillögum meiri hlutans sé líka talsvert útþynnt frá því sem stóð og stendur í frumvarpinu sem hæstv. menntamálaráðherra hefur lagt fram.
En ég verð að segja að í öllu tali hv. þingmanns og tilvitnunum í hina helgu bók og tali hans um umburðarlyndi og kærleika fannst mér felast afskaplega lítið umburðarlyndi fyrir öðrum skoðunum, öðrum sjónarmiðum, öðrum trúarbrögðum o.s.frv. Ég kalla því eftir að menn sem eru slíkrar skoðunar lifi eftir bókinni og því sem sagt er. Kærleikurinn umber allt. (Forseti hringir.) Það finnst mér sannarlega skorta í viðhorfi hv. þingmanns.