almannatryggingar o.fl.
Hæstv. forseti. Ég sakna skýrra svara við meginspurningunni, um 18. gr. (Forsrh.: Ég er búinn að svara því.) Og svarið var á þá lund að það kæmi ekki til greina eða hvað? (Forsrh.: Það kemur fram við atkvæðagreiðsluna.) Já. Ég eiginlega harma þessa umræðu af hálfu hæstv. forsætisráðherra. Getur verið að hann sé svo móðgaður yfir að þurfa að taka þátt í umræðu hér, málefnalegri umræðu um framtíð heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi?
Ég mótmæli því, hæstv. forseti, að ég hafi ekki fært málefnaleg rök fyrir máli mínu þegar ég reyndi að sýna fram á hvernig niðurskurður innan almannaheilbrigðisþjónustunnar gæti leitað út í útgjaldaauka á öðrum sviðum vegna þess skipulags sem við búum við, þ.e. einkareksturs í bland við almannarekstur.
Það er útúrsnúningur hjá hæstv. ráðherra að ég sé að tala gegn því að hér sé blanda af einkarekstri og almannarekstri. Ég gerði einmitt rækilega grein fyrir þessu. Ég tók (Forseti hringir.) til sem dæmi hvernig frestun á framkvæmdum við Landspítalann gæti leitt til þess (Forseti hringir.) að lausnir yrðu til annars staðar og á öðrum forsendum. En það er útúrsnúningur (Forseti hringir.) að ég reyni ekki að hafa hér í frammi málefnaleg rök. (Forseti hringir.) Ég mótmæli því.