Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna

Föstudaginn 14. desember 2007, kl. 14:09:03 (3410)


135. löggjafarþing — 45. fundur,  14. des. 2007.

happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna.

207. mál
[14:09]
Hlusta

Frsm. allshn. (Birgir Ármannsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti allsherjarnefndar um frumvarp til laga til breyting á lögum um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur og Hjalta Zóphóníasson frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti, Sigurð Ágúst Sigurðsson frá Happdrætti DAS og Pétur Bjarnason frá Happdrætti SÍBS.

Með frumvarpinu er lagt til að heimild Dvalarheimilis aldraðra sjómanna til að reka happdrætti verði framlengd um 11 ár eða til loka árs 2018. Framlenging þessi er í samræmi við gildistíma heimildar Happdrættis Háskóla Íslands til einkareksturs peningahappdrættis hér á landi en sú heimild gildir til 1. janúar 2019, sbr. lög nr. 127/2003.

Nefndin telur rétt að vekja athygli á því að í júní 2007 skipaði dóms- og kirkjumálaráðherra fastanefnd á sviði happdrættismála. Störf nefndarinnar skiptast í þrennt, að fylgjast með þróun á sviði happdrættismála í Evrópurétti, að gera tillögur til dóms- og kirkjumálaráðherra um framkvæmd vísindarannsókna um spilafíkn, ólögleg fjárhættuspil og fleira og gera tillögur til dóms- og kirkjumálaráðherra um réttarbætur á sviði happdrættismála.

Ágúst Ólafur Ágústsson, Karl V. Matthíasson, Ólöf Nordal og Siv Friðleifsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en nefndin leggur til að málið verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið rita sá sem hér stendur, Atli Gíslason, Sigurður Kári Kristjánsson, Ellert B. Schram og Jón Magnússon.