Fundargerð 135. þingi, 2. fundi, boðaður 2007-10-02 19:50, stóð 19:50:02 til 22:03:07 gert 2 22:16
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

þriðjudaginn 2. okt.,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað þriðjudaginn 2. október 2007, kl. 19.50. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Samfylkingin, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Geir H. Haarde forsætisráðherra í fyrstu umferð, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og landbúnaðarráðherra, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 4. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Álfheiður Ingadóttir, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 5. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Ásta R. Jóhannesdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri og Kristján Möller samgönguráðherra í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Guðni Ágústsson, 3. þingmaður Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Valgerður Sverrisdóttir, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Bjarni Harðarson, 8. þingmaður Suðurkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þingmaður Norðvesturkjördæmis, Jón Magnússon, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð en í þriðju umferð Grétar Mar Jónsson, 10. þingmaður Suðurkjördæmis.

Þingmálaskrá:

[19:51]

[22:01]

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 22:03.

---------------