Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að gera úttekt á kjörum og réttindum námsmanna. Vinnu við áætlunina skal lokið 1. mars 2008.
Markmið úttektarinnar verði:
1.
að kanna rétt námsmanna, sem veikjast eða lenda í slysi og geta ekki stundað nám, til
opinberrar aðstoðar og námslána,
2.
að kanna rétt námsmanna til fæðingarorlofs, sérstaklega með tilliti til kvenna sem veikjast á meðgöngu og geta af þeim sökum ekki skilað fullnægjandi námsárangri,
3.
að skoða þann framfærslugrunn sem miðað er við í úthlutun námslána og endurskoða
hann með nýrri framfærslurannsókn.
Greinargerð.
Árið 2006 stunduðu um 17 þúsund einstaklingar nám á háskólastigi á Íslandi. Þessi stóri
hópur er fjölbreyttur og með margvíslegar þarfir. Helmingur hópsins á það þó sameiginlegt
að byggja framfærslu sína á námslánum.
Samkvæmt núverandi framfærslugrunni LÍN er gert ráð fyrir að einstaklingur eyði 497
þús. kr. á ári í húsnæði, hita og rafmagn, eða um 42 þús. kr. á mánuði. Á höfuðborgarsvæðinu
eru slík kostakjör á leiguhúsnæði vandfundin. Það er mat flutningsmanna að tími sé kominn
til að framkvæma nýja metnaðarfulla framfærslurannsókn meðal námsmanna og að miðað
verði við þá könnun við úthlutun námslána.
Til að hljóta námslán þarf að uppfylla ýmsar kröfur hvað varðar námsárangur og námsframvindu. Því geta veikindi, slys eða meðganga og fæðing veikt fjárhagsstöðu margra námsmanna. Því er nauðsynlegt að kanna réttindi og kjör námsmanna og kortleggja ástandið eins
og það er í dag til að geta bætt það. Sem dæmi má nefna að þegar námsmenn eignast börn fá
þeir fæðingarstyrk. Til að fá fæðingarstyrk þarf námsmaður að skila 75% námsárangri í
a.m.k. 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum. Þessi krafa gerir það að verkum að ef námsmaður
verður veikur á meðgöngunni og nær ekki að skila tilskildum námsárangri fær viðkomandi
ekki þennan fæðingarstyrk sem námsmaður, heldur flokkast hann utan vinnumarkaðar. Sú
upphæð sem þá er um að ræða dugar ekki fyrir framfærslu.
Það er mat flutningsmanna þessarar þingsályktunartillögu að mikil þörf sé á að greina
vandann á þessu sviði og í framhaldinu finna á honum lausnir.